Tumi Ferrer

Tumi Ferrer random header image

„Keppt í kúnstum kaffilistarinnar“ (Morgunblaðið 16. feb.)

February 19th, 2009 · 1 Comment

Jæja. Margir mánuðir af æfingum skiluðu sínu. Það eina sem ég get verið ósáttur með núna er hversu lítið fjölmiðlar virðast hafa áhuga á þessu, en mér er sagt að þetta sé svona á hverju ári. Mynd af keppanda, önnum kafinn við iðju sína og klausa undir sem greinir frá sigurvegara og helstu verðlaunaafhendingum. Heilmikið miðað við fyrri ár.

Svo. Kannski að ég greini frá atburðum keppninnar frá augliti keppanda. Ég sá auðvitað ekki alla þar sem ég sjálfur var jafn upptekinn og hver annar við að keppa og því fylgir alltaf svaka hausverkur. Ég er reyndar ekki með allar staðreyndir nákvæmlega á hreinu en ég reyni t.d. að lýsa frjálsu drykkjunum sem best ég man.

Laugardagur 14. febrúar

Klukkan er átta að morgni. Sex keppendur frá Kaffitári – Ég, Ingibjörg, Harpa, Katrín Alfa og Bóel –  og eitt stykki þjálfari og afmælisbarn að nafni Kristín Ingimars, snæða saman morgunverð á kaffihúsi Kaffitárs í Kringlunni (undir rúllustigunum rétt hjá Hagkaup….svo notalegt!), fara með gamanmál og hughreysta hvert annað fyrir þær annasömu og streituvaldandi fimmtán mínútur sem bíða hvert og eitt okkar. Hápunkturinn var svo svaka girnileg afmælisterta eftir ristaða brauðið. Kristín Ingimars kom í viðeigandi prinsessudressi og mundaði veldissprota sem á stóð „Ég er KRISTÍN!“.

Dagurinn sligast hægt en ákveðið áfram. Það virðist alltaf vera dágóður tími til að hafa sig til en skyndilega er hann farinn. Hér voru saman komnir 18 keppendur: Átta frá Te&Kaffi, sex áðurnefndir kaffibarþjónar frá Kaffitár, tveir frá Á Næstu Grösum og loks tveir frá Kaffi Karólínu á Akureyri. Bóel var fyrst til að keppa og Anna Sóley þriðja og allt í einu voru bara fimm keppendur sem voru á undan mér og, eins og skipulagið keppnarinnar var, þurfti ég að koma keppnisdótinu mínu fyrir á svæðinu á meðan keppandinn á undan mér var að….keppa (teljið nástöðurnar í þessari málsgrein). Það var gaman að fylgjast með öllum hinum. Þorri keppenda var að hljóta sína eldskírn akkúrat þennan dag – ég þarámeðal.

Og nú kemst ég varla hjá því að fjalla um sjálfan mig:

Tumi #8 skrifaði ég með svörtu geisladiskatússi á gulan Post-it miða og lagði ofan á hulstrið utan um Heavy Wheather með Wheather Report – tónlistin undir prógrammið mitt. Fusiondjass er soldið lýsandi fyrir hver ég er. Færir hljóðfæraleikarar, gefnir fyrir flóknar pælingar og útfærslur og skrýtin hljóð, koma saman, spila og stíla inn á lítinn markhóp. Tónlistarnördar að reyna að ná sambandi við aðra slíka. Eða bara nörda. Eins og mig.

Keppandi #7  kláraði á yfir sautján mínútum. Ein sekúnda yfir fimmtán mínútum jafngildir einu refsistigi og þau eru talin þar til sextánda mínútan er liðin, þ.e. ein mínúta framyfir. Eftir það er keppandi dæmdur úr leik. Tvö ár í röð keppti ég í undankeppni Kaffitár (úrsláttarkeppni fyrir Íslandmeistaramótið) og endaði með einkunnina „disqualified“. Ég veit nokkurn veginn hvernig keppanda #7 leið þennan daginn. Og næstur á svið….Tuuuuuuuuuuumi Ferreeeeeeeeeeeeer!

[Read more →]

→ 1 CommentTags: Kaffi · Mjólkurlist

Nánar um Íslandsmót Kaffibarþjóna

February 8th, 2009 · 1 Comment

Eins og ég sagði í síðustu færslu ætlaði ég að koma með nánari upplýsingar um allt varðandi þetta blessaða mót þegar allt væri niðurneglt.

Keppnin verður sem sagt í Kringlunni á fyrstu hæð á Blómatorgi, rétt hjá Blómavali, laugardaginn og sunnudaginn 14- 15. febrúar nk. Á fyrri keppnisdegi keppa samtals 19 keppendur, hver þeirra með 15 mínútna rennsli og byrjar fyrsti keppandi á slaginu 10 um morguninn. Sex stigahæstu keppa svo til úrslita á sunnudaginn. Sigurvegari keppir svo fyrir Íslands hönd í heimsmeistarakeppninni, sem haldin verður í Atlanta, Bandaríkjunum, næstkomandi apríl.

Á sunnudeginum verður dagurinn tekinn snemma með Íslandsmeistarakeppni í mjólkurlist (e. latte art), en hún er öðruvísi m.a. að því leyti að keppendur fá að vita einkunnir sínar jafnóðum og keppnistíma lýkur. Þetta er mun sneggri keppni og áhorfendavænni að sumu leyti; stigataflan er öllum sýnileg og áhorfendur hrífast auðveldlega með.Íslandsmeistarakeppni kaffibarþjóna er aðeins stærra batterí heldur en mjólkurlistin, enda stigagjöfin margfalt flóknari og ráðast úrslitin ekki fyrr en dómarar hafa borið saman stig eftir að allir hafa klárað.
Eftir mjólkurlistina tekur úrslitakeppni kaffibarþjóna við og lýkur þessu að sjálfsögðu með verðlaunaafhendingum.

Þetta er tilvalið tækifæri fyrir ykkur til að sjá kaffibarþjóna í allt öðru ljósi en bakvið afgreiðsluborðið.

Hér getið þið séð keppnisrennsli þáverðandi heimsmeistara 2007, James Hoffmann:

→ 1 CommentTags: Kaffi · Mjólkurlist

Bíddeh…..kaffikeppni?

January 25th, 2009 · No Comments

„Hvasseigirðu? Er hægt að keppa í kaffi?“ er spurning sem ég heyri nánast undantekningalaust þegar ég segi einhverjum í fyrsta skipti hver sé ástæða mín fyrir fjarveru minni frá ýmsum félagslega tengdum atburðum, eins og mótmæli, tónleikar og annað í þeim dúr. Þau eru sleginn enn meiri furðu þegar ég bæti við að ég sé búinn að æfa frá því í september sl. (reyndar ekki allan tímann jafnstíft, æfingarnar eru tíðari þegar nær dregur móti augljóslega).

Fyrir ykkur sem hafið áhuga á að vita meir um keppnina getið kynnt ykkur reglurnar á worldbaristachampionship.com (óþolandi að skrifa þessa slóð í nýjum vafra). Þar eru m.a. myndir og myndbönd af efstu sex keppendum síðasta móts og annað dót.

Í sem stystu máli gengur keppnin út á færni kaffibarþjóns í framreiðslu á þremur tegundum af drykkjum, fjórum af hverri sort; expressó, cappuccinó og frjáls drykkur (drykkur eftir eigin uppskrift, verður að innihalda expressó og má alls ekki innihalda ólögleg vímu eða fíkniefni). Keppnistíminn er fimmtán mínútur. Kaffibarþjónninn 

ber drykkina fram fyrir fjóra bragðdómara en þeir dæma kaffið eftir útliti, lykt og jafnvægi í bragði. Tveir tæknidómarar gefa kaffibarþjóninum stig fyrir samræmi í vinnubrögðum, þrifnað og jafnvægi í tíma sem vatnið rennur í gegnum kaffið yfir í bollann. Auk þess er einn yfirdómari sem gefur stig fyrir „overall performance“.

Þetta skýrist allt í þessu myndbandi.

latteart5

Æfingarnar hafa snúist um allt milli himins og jarðar sem tengist beint og óbeint keppnisrennslinu. Allt frá borðbúnaði yfir í tónlist í bakgrunni; vigtun á kaffinu sem fer í síuna (verður alltaf að vera jafn mikið, ef það skeikar grammi getur það haft mikil áhrif á bragð); breinstorm um hvað virkar og hvað virkar ekki útí kaffi; við höfum notið aðstoðar leikara upp á framkomu á sviði; heimalærdómur um hvaða kaffi kemur hvaðan, frá hvaða búgarði, nafn bóndans osfrv.; pælingar varðandi mjólkurblöndur fyrir cappuccinó og almennt grúsk í matreiðslubókum. 

Þetta er ekki beint einfalt, sjáiði til.

Mótið verður haldið helgina 14-15. febrúar, þ.e. eftir þrjár vikur. Staðsetning verður auglýst síðar. Á sunnudeginum verður líka keppni í svokallaðri mjólkurlist, þar sem fólk keppir um að gera flottasta skraut í kaffibollann, eins og myndin hér að ofan gefur dæmi um.

Öllum er frjálst að mæta og kíkja á þetta

→ No CommentsTags: Kaffi

Stafrænir leppalúðar

January 8th, 2009 · No Comments

Þetta vakti athygli mína nógu lengi til að spá aðeins í það yfir í hvað netsamfélagið er að þróast. Minnir mig á það þegar ég var í níunda bekk og gúglaði “miserable failure” og fyrsta niðurstaðan var æviágrip um George W. Bush. Þetta var gert með svokölluðu “Google bombing” (annað dæmi um slíkt prakkarastrik fæst ef þið gúglið “French military victories”). Svona nokkuð sýnir augljóslega mátt fjöldans á netinu.

Mér finnst að mótmælendur á Íslandi ættu að notfæra sér tól internetsins miklu róttækar til að ná sínu fram, hvort sem það er að þvinga núverandi ríkisstjórn til að víkja eða hina og þessa lykilmenn í efnahagslífinu. Þeir eru töluvert veikari ef tölvukerfið hikstar. Taka t.d. Anonymous til fyrirmyndar, þeim hefur tekist nokkuð vel í baráttunni gegn Vísindakirkjunni.

Tölvunördar Íslands ættu að luma á einhverju upp ermina…talandi um að það að bera klút til að hylja andlitið sé herkænska mótmælenda, þá eru aðgerðir á internetinu eins og að vera með huliðsskikkju.

→ No CommentsTags: Deiglan · Hugleiðingar

Norskur læknir í Gaza segir frá

January 7th, 2009 · No Comments

Mads Gilbert segir allt sem segja þarf í þessu viðtali. Þessi dráp eru vægast sagt fáránleg að öllu leyti. Ekkert annað en slátrun.

→ No CommentsTags: Deiglan