Hvítasunnuhelgi. Kláraði prófið (mitt fyrsta og eina lokapróf í MH þessa önnina) síðasta mánudag, daginn eftir tvítugsafmælið mitt.
Búinn að hanga svolítið mikið á netinu. Las á einni síðu um sex staðreyndir sem allir virðast vita en eru allar bull. Hér er svo hægt að lesa um nýja týpu af mótorhjólum, sem gengur fyrir metani. Geðveik pæling, nema ef hún er hugsuð fyrir ríkt fólk með samviskubit yfir allri menguninni í heiminum…(minnir mig svolítið á þetta).
Skrýtnasta fréttin er samt af stráknum sem gekk í sama bolnum í næstum fjögur ár og fjóra mánuði, hvern einasta dag. Þar sem hann var orðinn tólf ára ákvað hann víst að fara að brjóta aðeins upp fatastílinn…




0 responses so far ↓
There are no comments yet...Kick things off by filling out the form below.
Leave a Comment