Tumi Ferrer

Tumi Ferrer random header image

Adam West

April 10th, 2009 · No Comments

Adam West er – eins og Mark Hamill í hlutverki Luke Skywalker, Macaulay Culkin í Home Alone og allt Friends-liðið – svokallaður typecast-leikari; fastur í einu hlutverki í huga flestra aðdáenda. Hann lék í gömlu Batman þáttunum og upp frá því ávallt einfaldlega verið Batman, án þess að geta gert nokkuð í því.

Leikari í þessari stöðu hefur venjulega bara tvo valmöguleika: Leika hlutverk sem eru nákvæm andstaða við það sem þeir eru þekktir fyrir að leika (góði gæjinn leikur vondan og öfugt, gamanleikari verður dramatískur og alvarlegur osfrv.) eða sætta sig við að vera fastur og nýta sér það. Adam West ákvað að fara seinni leiðina með góðum árangri og vaxandi költstatus nú í seinni tíð.

Þessi leið krefst mikillar sjálfhæðni. Batman, sem Adam West lék á sjöunda áratugnum, þykir hallærislegur og hlægilegur í dag. Og Adam heldur áfram að leika í dag eins og hann lék þá og nær þannig að snúa leikferli sínum upp í grín. Seinustu ár hefur hann gert garðinn frægan í Family Guy þáttunum þar sem hann talar fyrir borgarstjóra Quahogs, Adam West(!). Allt í einu er þessi leikari þekktur fyrir að leika sjálfan sig (þó oftast í gegnum leiknar persónur), í staðinn fyrir Batman.

Ég læt fljóta með einn pilot-þátt sem var gerður á seinasta áratugi, Lookwell. Þar leikur Adam West útbrunnin leikara að nafni Ty Lookwell sem lék eins konar Dirty Harry-týpu af löggu á sínum yngri árum. Vegna reynslu sinnar í þess konar leik telur hann sig ómissandi í baráttunni gegn glæpum í raunheiminum, í misskilinni óþökk lögreglunnar. Fleiri þættir voru ekki gerðir eftir þennan. Hvers vegna verður mér hulið um aldur og ævi.

Tags: Myndrænt · Röfl

0 responses so far ↓

  • There are no comments yet...Kick things off by filling out the form below.

Leave a Comment