Af öllu því heimskulega sem hægt er að selja heimsku fólki – eins og bækur um hvernig á að verða ríkur, klífa metorðastigann og vera kynlífsguð (svo örfátt sé nefnt) – finnst mér heilsuræktarvörur standa upp úr. Þær eru allar miðaðar við það að allt heimskt og feitt fólk geti orðið fallegt og mjótt með sem minnstri áreynslu.
Megrunarplástrar hljóma lyginni líkast. Bara að setja einn á handlegginn og lifa lífinu óbreyttu og missa þyngd í leiðinni. Heimska fólkið les þetta líkast til ekki:
Please Note: The statements contained on this site have not been evaluated by the Food and Drug Administration. Not intended to diagnose, treat, prevent, mitigate or cure any disease. Your actual results may vary. Please check with your physician before taking any diet pills or starting any weight loss program.
Engin vísindaleg staðfesting á virkni; mismikill árangur og neytandi þarf að leita læknis til að ganga úr skugga um að honum sé óhætt að nota þetta. Held að það sé óhættara að kaupa í staðinn venjulega plástra útí búð og setja þá fyrir munninn!
Diet kók hljómar vel. Sama bragð, færri kaloríur. Straightforward. Diet vatn vekur ekki alveg sömu viðbrögð. Hvernig ætli fitubolluvatnið þeirra sé?

Jump Snap er samt það heimskulegasta sem ég hef séð. Ég sé enga ástæðu til þess að kaupa sippuband á 50$ án bandsins.




0 responses so far ↓
There are no comments yet...Kick things off by filling out the form below.
Leave a Comment