Tumi Ferrer

Gildi þjónustu í kreppu
Að skreppa til útlanda yfir langa helgi þegar flugið fram og til baka kostaði minna en að taka leigubíl til Akureyrar; að eiga ferðasögu frá öllum heimsálfum, að vinna við skúringar og keyra í vinnunni á nýja lúxusjeppanum á 100% láninu; að eiga Apple-tölvu; að drekka frappuccino. Hvílíkur tími var góðærið! Hvílík synd að þurfa að gefa þetta upp á bátinn.

Leikmynd velmegunarinnar féll svo skyndilega að stærstur hluti þjóðarinnar var í lamasessi þegar skellurinn var hæstur. Fékk ég að kynnast því þar sem ég var að vinna á Kaffitári í Borgartúninu. Sumir fastakúnnar fóru að mæta með lengra millibili en áður og minnkuðu viðskiptin í hvert skipti (að neita sér um meðþvíið, hætta að splæsa á vini sína og þar fram eftir götunum). Nýjum kúnnum blöskraði meint okurverð á vörum og heimta afrit og kvittun eftir greiðslu, sem gerðist mun sjaldnar fyrir hrunið (síðan ég hóf störf hjá Kaffitári haustið 2006). Allt í einu var litið hýru auga til afslátta og tilboða og allt sem kalla mátti hagkvæmt. Kreppan kom Íslendingnum – með öðrum orðum – aftur niður á jörðina og vera meðvitaður sem neytandi.

Að vera neytandi á Íslandi í dag snýst um að velja hagkvæmasta kostinn og bruðla sem allra minnst. Það gerir hver upp við sig hve mikil þægindi maður er tilbúinn að fórna fyrir aukinn sparnað. Augljóslega er maður ekki tilbúinn að borga sama verð fyrir eina kleinu á kaffihúsi og heilan kleinupoka útúr búð nema að þjónustan sé í samræmi við verðið. Það fer allt eftir því hve mikils maður metur þjónustu. Bjór er bara bjór, en ég græt ekki peninginn sem ég eyði til að geta drukkið hann á uppáhaldsbarnum og spjalla og hafa gaman. Ef neytandi vill þjónustu hlýtur hann að vera tilbúinn að borga fyrir hana.

Er það ekki annars?

Sala á hrossabjúgum og slátri hefur á sama tíma stóraukist. Matur í þjóðlegra ívafi á meira upp á pallborð neytandans sem ver eyrinn sinn með kjafti og klóm. Þannig hafa pönnukökur með rjóma og flatbrauð með hangikjöti tekið við af sushibitum og öðrum framandi pinnamat sem hefðbundnar hressingar í fermingarveislum. Heimabakað í stað veilsuþjónustu. Heimahús í stað veislusals. Stærra rými fórnað fyrir minna. Kreppan þjappar fólki saman. Bara það að hittast í kaffi heimafyrir felur í sér talsverðan sparnað. Setjum upp eitt lítið reiknidæmi.

Ég býð einum vini heim í kaffi. Segjum að einn pakki (250 grömm) kosti 450 krónur. Má segja að það sé í meðallagi, ekkert lúxus en enginn viðjóður. Ég er líka óþolandi nískupúki svo ég býð ekki upp á neitt meðþví.

Pakkinn dugar í 40 bolla eða 2,5 lítra. Hver bolli af kaffi kostar því rúmlega 11,25 krónur

Ég get reiknað með því að ég og vinur minn drekkum saman einn lítra (8 bolla, 4 á mann). 11,25 margfaldað með 8 gerir 90.

Ég get boðið vini mínum þrisvar heim til mín í kaffi og eyðslan er sambærileg og í einn venjulegan kaffibolla á kaffihúsi. Þess ber að minnast að mörg kaffihúsin rukka mun meira fyrir þennan bolla. Ég gæti alveg eins splæst í nokkrar kjallarabollur úr bakaríinu og það næði upp í annan eins uppáhelling. Ég gæti jafnvel bakað brauðið sjálfur og sparað enn meira. Ég gæti ræktað mínar eigin matjurtir í eldhúsinu. Hvað ef ég væri með nokkrar beljur í fjósi til að eiga mjólk í kaffið og strokka eigið smjör… Fólk verður að eiga það við sjálft sig hversu sjálfbært það kýs að vera.

Af hverju kostar kaffibollinn þá svona mikið á kaffihúsi? Hvað er svona mikið fútt við að fá sér kaffi og meðþví og borga meira fyrir það?

Ég reikna með því að flestir geti svarað frá eigin brjósti, enda er kaffihúsaupplifun gríðarlega einstaklingsbundin. Fastakúnnarnir sækja sama staðinn aftur og aftur þar eð umhverfið er orðið þeim kunnuglegt, starfsmennirnir þekkja (sér)þarfir manns og viðmótið fellur þeim í geð. Festan er þeim mikils virði og verð í krónum (eða öðrum hugsanlegum gjaldmiðli) er aukaatriði, svo lengi sem það er nokkurnveginn hið sama. Aðrir kúnnar heimsækja kaffihúsin til hátíðarbrigða, fá sér eina væna rjómatertusneið og einn verulega góðan kaffibolla, eitthvað sem er erfitt að hrista fram úr erminni heima á jafn stuttum tíma. Enn aðrir sækjast miklu frekar í þráðlausa netið og afslappandi andrúmsloftið, auk uppáhellingsins sem réttlætir setuna innifyrir. Mætti hugsanlega tala um annað heimili…

Ímyndum okkur eitt andartak að kaffihús væru ekki til. Vissulega fælist mikill sparnaður í því ef allir löguðu sitt eigið kaffi heima, auk þess sem heimilisbragur yfir bakkelsi og öðru gúmelaði getur oft verið betra en það sem keypt er. Í raun má segja að í hverju heimili hafi verið lítið kaffihús. Því þar var við störf ein hógværasta starfstétt þjóðarinnar; geirfuglinn í mennsku flóru 21. aldarinnar; hvers mikilvægi var ávallt stórlega vanmetið: Húsmóðirin.

Svínaflensa
Ó, reddit. Botnlaus uppspretta skemmtunar.

Adam West
Adam West er – eins og Mark Hamill í hlutverki Luke Skywalker, Macaulay Culkin í Home Alone og allt Friends-liðið – svokallaður typecast-leikari; fastur í einu hlutverki í huga flestra aðdáenda. Hann lék í gömlu Batman þáttunum og upp frá því ávallt einfaldlega verið Batman, án þess að geta gert nokkuð í því.

Leikari í þessari stöðu hefur venjulega bara tvo valmöguleika: Leika hlutverk sem eru nákvæm andstaða við það sem þeir eru þekktir fyrir að leika (góði gæjinn leikur vondan og öfugt, gamanleikari verður dramatískur og alvarlegur osfrv.) eða sætta sig við að vera fastur og nýta sér það. Adam West ákvað að fara seinni leiðina með góðum árangri og vaxandi költstatus nú í seinni tíð.

Þessi leið krefst mikillar sjálfhæðni. Batman, sem Adam West lék á sjöunda áratugnum, þykir hallærislegur og hlægilegur í dag. Og Adam heldur áfram að leika í dag eins og hann lék þá og nær þannig að snúa leikferli sínum upp í grín. Seinustu ár hefur hann gert garðinn frægan í Family Guy þáttunum þar sem hann talar fyrir borgarstjóra Quahogs, Adam West(!). Allt í einu er þessi leikari þekktur fyrir að leika sjálfan sig (þó oftast í gegnum leiknar persónur), í staðinn fyrir Batman.

Ég læt fljóta með einn pilot-þátt sem var gerður á seinasta áratugi, Lookwell. Þar leikur Adam West útbrunnin leikara að nafni Ty Lookwell sem lék eins konar Dirty Harry-týpu af löggu á sínum yngri árum. Vegna reynslu sinnar í þess konar leik telur hann sig ómissandi í baráttunni gegn glæpum í raunheiminum, í misskilinni óþökk lögreglunnar. Fleiri þættir voru ekki gerðir eftir þennan. Hvers vegna verður mér hulið um aldur og ævi.

<object width="425" height="344"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/dBQ3HbB0c8Y&hl=en&fs=1"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/dBQ3HbB0c8Y&hl=en&fs=1" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="425" height="344"></embed></object>

Hjálpi mér
Af öllu því heimskulega sem hægt er að selja heimsku fólki – eins og bækur um hvernig á að verða ríkur, klífa metorðastigann og vera kynlífsguð (svo örfátt sé nefnt) – finnst mér heilsuræktarvörur standa upp úr. Þær eru allar miðaðar við það að allt heimskt og feitt fólk geti orðið fallegt og mjótt með sem minnstri áreynslu.

Megrunarplástrar hljóma lyginni líkast. Bara að setja einn á handlegginn og lifa lífinu óbreyttu og missa þyngd í leiðinni. Heimska fólkið les þetta líkast til ekki:

Please Note: The statements contained on this site have not been evaluated by the Food and Drug Administration. Not intended to diagnose, treat, prevent, mitigate or cure any disease. Your actual results may vary. Please check with your physician before taking any diet pills or starting any weight loss program.

Engin vísindaleg staðfesting á virkni; mismikill árangur og neytandi þarf að leita læknis til að ganga úr skugga um að honum sé óhætt að nota þetta. Held að það sé óhættara að kaupa í staðinn venjulega plástra útí búð og setja þá fyrir munninn!

Diet kók hljómar vel. Sama bragð, færri kaloríur. Straightforward. Diet vatn vekur ekki alveg sömu viðbrögð. Hvernig ætli fitubolluvatnið þeirra sé?

Jump Snap er samt það heimskulegasta sem ég hef séð. Ég sé enga ástæðu til þess að kaupa sippuband á 50$ án bandsins.

Samskiptakerfi kaffibarþjóns í rituðu máli
Þetta sem ég er að fara að skrifa hefur lengi verið í bígerð í kollinum á mér. Ekki vegna þess að ég telji þetta nauðsynlegan lið í vinnunni á Kaffitári, þó þetta sé nú mjög hjálplegt í daglegri rútínu kaffibarþjónsins.

Ég skal viðurkenna þetta strax. Þetta er skrýtið, e.t.v. óþarflega flókið og mjög líklega óþarft. Þetta er hins vegar góð heimild fyrir hvað ég hef tekið upp sem gjaldgengan tjáningarmáta í vinnu minni sem kaffibarþjónn.

Ath. Samskiptakerfi kaffibarþjóna er breytileg eftir kaffihúsum og þar sem við á reyni ég eftir fremsta megni að geta þess ef „mállýskur“ eða samheiti eru til. Einnig er rétt að geta þess að hér miða ég einungis við Kaffitár, þar eð ég þekki ekki tjáningarmáta annarra kaffihúsa og reikna með að þau séu á margan hátt ólík því sem ég þekki.

Ritað mál

Ég hef ekki neina vísindalega tölu yfir hversu margir Post-It miðar eru skrifaðir á einu kaffihúsi á venjulegum degi. Það kæmi ekkert á óvart þó að venjulegur kaffibarþjónn skrifi á nokkra tugi gulra miða á hverjum degi svo það nálgaðist hundraðið (og færi létt með það). Post-It miðinn sem notast er við er ekki stór þó að oft þurfi hann að innihalda miklar og nákvæmar upplýsingar um kaffidrykk.

Þegar ég byrjaði hjá Kaffitári voru styttingar fyrir hinu og þessu gjörsamlega niðurnegldar. Í raun hefur skapast táknkerfi í kringum kaffidrykki sem hefur ótalmargt sameiginlegt með tungumáli. Berum þetta snöggvast saman:

Venjulegt orð á íslensku, með forskeyti, rót, viðskeyti og beygingarendingu:

forvitinn -> for-vit-in-n

Venjulegur pantaður kaffidrykkur skrifaður á Post-It miða:

Soja cappuccino með vanillusírópi til að taka með -> SoCapVan (út)

so (forskeyti) cap (rót) van (viðskeyti) (út) (beygingarending)

Frekar auðvelt. Þetta er líka frekar einfaldur drykkur. Það verður erfiðara að hluta þetta niður eftir því sem drykkurinn er flóknari.

Táknkerfi og styttingar í kaffidrykkjum

Eins og ég sé kerfið fyrir mér hljóta forskeytin í kaffidrykkjunum að innihalda upplýsingar um veigamestu frávikin frá venju drykksins, hvort sem það er spurning um mjólk, koffíninnihald eða stærð expressóskotsins.

Rót kaffidrykkjarins er augljóslega hvaða viðmið er haft til hliðsjónar. Rótin segir til um eðli drykkjarins; stærð, hitastig, hlutfall milli mjólkur, kaffis og annað sem fyrirfram hefur verið staðlað. Ef rótin er t.d. Cap (cappuccinó) ber það með sér að drykkurinn er blanda af kaffi, mjólk og froðu, er heitur og er minni en latte.

Viðskeytin eru viðbættar upplýsingar, oftast um hvaða síróp á að bæta út í kaffið, rjómi/án rjóma, hitastig eða magn ef það eru séróskir um slíkt.

Beygingarending hefur sambærilegt hlutverk í íslensku og í kaffidrykkjum: Að greina milli kynja.

Íslenska hefur þrjú kyn: Karlkyn, kvenkyn og hvorugkyn.

Kaffidrykkir hafa einnig þrjú kyn: “Drekka hér”, “Taka með” og hvorugkynið “Taka-með-en-drekka-samt-hér”. Að taka postulínsbollan með sér er yfirleitt ekki í boði.

En hvernig virkar kerfið í raun og veru?

Hvernig á t.d. á skrifa niður á blað „koffeinlaus soja macchiató með tvöföldu skoti, minni mjólk og extra froðu og hálfu skoti af sykurlausri heslihnetu”. Hér kemur táknkerfið að góðum notum:

Koffeinlaus er alltaf skrifað sem ÷ (“mínus”) og ég hef vanið mig á að hafa þetta merki fremst í klausunni þar sem þetta er eiginlega mikilvægast.

Soja þýðir að í drykknum á að vera sojamjólk í staðin fyrir venjulega beljumjólk (í macchiató væri annars notuð G-mjólk). Til að spara mest pláss á miðanum er best að skrifa “so”. “Soj” eða “Soja” sést jöfnum höndum á miðunum og fer þetta alveg eftir því hver skrifa og er alveg jafn skiljanlegt. Eðlilega.

Algengasta styttingin á macchiató er “makk”.

Tvöfalt skot skilst á Kaffitári sem “stór expressó”, þar eð tvöfaldur expressó er ekki fullkomlega tvöfaldur samkvæmt ströngustu skilgreiningum með tilliti til kaffimagns á móti vatni og þar frameftir götunum. Auk þess gefur þetta villandi skilaboð um að drykkurinn allur tvöfaldist í magni sem er alls ekki satt. Þetta er efni í aðra umræðu og tengist þessari bara lítillega. Það eina sem skiptir máli hér er að “Tvöfaldur macchiató” er tekið sem samheiti yfir “stór macchiató” og stytt oftast sem “smakk”. Aðrar útgáfur geta verið t.d. “smacc” “smack” eða “s.makk” o.s.frv.

Minni mjólk hefur ennþá ekki fengið opinbera styttingu (þó ekkert að ofantöldu sé í rauninni “opinbert”) og er venjulega skrifað fullum stöfum. Til eru dæmi um styttingar á borð við “mim” eða “minni mj.” og tíminn hlýtur að úrskurða hvað stendur uppi á endanum ef við þurfum í vaxandi mæli að grípa til styttinga. Virkar á sama hátt og lýsingarorð.

Extra froða getur verið skrifað sem “x froða” eða einfaldlega “froða”. Þetta viðskeyti ber alltaf með sér vissa áherslu því að viðskiptavinurinn biður sérstaklega um að passa vel upp á þennan þátt í drykknum. Virkar á sama hátt og lýsingarorð.

Hálft skot af sykurlausu heslihnetusírópi er í rauninni þríþætt viðskeyti. Það ber með sér magn, eðli og bragð. í sinni einföldustu mynd væri þetta viðskeyti bara nafn bragðsins, t.d. van(illa) eða kar(amella). Kaffibarþjónar Kaffitárs eru nær einhuga um að stytta þetta svo: “1/2 ÷ hazel” (reyndar skrifa sumir hesli eða haz en það er aukaatriði).

Hvernig röðum við þessu saman?

Eins og almennt með setningauppröðun býr einstaklingurinn við ákveðið frelsi og má setja einn hluta á undan eða á eftir öðrum og snúa öllu þess vegna á hvolf til að hámarka hugsanlegt listrænt gildi. Fyrir hámarksnýtni (sem er megin fókuspunkturinn hér) verður uppröðunin að “meika sens”, þannig að sem flestir skilji án þess að hugsa í langan tíma.

Runan sem ég er búin að hluta niður hér fyrir ofan reynist mér best að skrifa svona:

÷sosmakk1/2÷hazel

minni mj.

x froða

Stundum verður ekki hjá því komist að skrifa hluta pöntunarinnar á eðlilegri íslensku. Þetta táknkerfi er engan veginn fullkomið – ekki það að tungumál sé það heldur – en er mjög nytsamlegt eins langt og það drífur. Hér fyrir neðan hef ég síðan skráð helstu styttingar sem notast er við dags daglega á kaffihúsum Kaffitárs. Listinn er ótæmandi.

Forskeyti:

So – sojamjólk

hrís – hrísmjólk

hafra – haframjólk

lé – léttmjólk

ný – nýmjólk

G – G-mjólk

fro – froða (gengur nær eingöngu með latte)

÷ – koffeinlaus

S/st. – stór (expressó í drykk)

l – lítill (expressó í drykk)

m./mi./mild – mildur (lítill expressó í drykk sem venjulega er með stóran, t.d. latte eða swiss mokka)

3f. – þrefaldur (aukaskot ofan á stóran expressó). Tekið er mið af fjölda skota í drykk og sett “f” aftan við (4f., 5f., o.s.frv.)

Rætur:

Súkk – heitt súkkulaði

bsú/b.súkk osfrv. – barnasúkkulaði

la/lat/latte – Kaffi latte

cap – Cappuccinó

makk/macc/mack osfrv. – expressó macchiató

ex – expressó

rist – rístrettó

c.panna/con p. – expressó con panna

Ame/am – ameríkanó

DV/DaV/Da – Kaffi DaVinci

Swiss/Sviss/S.Mokka osfrv. – Swiss Mokka

Sveifla – Karamellusveifla

EG/Earl – Earl Grey te

EB/English – English Breakfast te

Einhverra hluta vegna hafa styttingarnar ekki náð yfir tein nema örlítið.

Viðskeyti:

Síróp:

Van – vanilla

haz/hesli/hazel osfrv. – heslihneta

súkk – súkkulaði

IC/irish – Irish cream

kók/kókos/coco osfrv. – kókoshnetu

kar – karamellu

Önnur viðskeyti:

1/2 – hálft skot (af sírópi)

auka – auka skot

3f. – þrefalt skot

Viðbættar upplýsingar um drykki:

m/rj. – með rjóma

÷rj. – án rjóma

(út) – til að taka með, í götumáli í “túgó-köpp”

x° – hitastig mjólkur (í Farenheit gráðum) t.d. 140°

minni mj./mim – minni mjólk

fro/froða/xfroða osfrv. – meiri froða (má nota sem forskeyti með “la”)

fylla – fylla ílátið (á við þegar drykkir fylla ekki upp í barm)

xhot/heitur/hot!!! osfrv. – extra heitur

glas – Borið fram í glasi

Svona fyrir ykkur lesendur til að æfa ykkur á þessu táknkerfi er ég hérna með nokkrar þrautir:

Hvað er:

1. LéScap1/2van fylla 150° (út)

2. ÷m.SoSwissvan÷rj froða

3. ÷Sojsveifla3f.÷súkk÷rj?

Hvernig myndirðu skrifa:

1. koffeinlaus hafracappuccinó, tvöfaldur, minni mjólk, sjóðheit, til að taka með

2. mildur léttur froðulatte minni mjólk

3. Stór macchiató með hálfu skoti af irish, hálfu af súkkulaði og soja, í götumáli?

Endilega komið með athugasemdir ef ykkur finnst vanta í listann.  Allar tillögur vel þegnar.

„Keppt í kúnstum kaffilistarinnar“ (Morgunblaðið 16. feb.)
Jæja. Margir mánuðir af æfingum skiluðu sínu. Það eina sem ég get verið ósáttur með núna er hversu lítið fjölmiðlar virðast hafa áhuga á þessu, en mér er sagt að þetta sé svona á hverju ári. Mynd af keppanda, önnum kafinn við iðju sína og klausa undir sem greinir frá sigurvegara og helstu verðlaunaafhendingum. Heilmikið miðað við fyrri ár.

Svo. Kannski að ég greini frá atburðum keppninnar frá augliti keppanda. Ég sá auðvitað ekki alla þar sem ég sjálfur var jafn upptekinn og hver annar við að keppa og því fylgir alltaf svaka hausverkur. Ég er reyndar ekki með allar staðreyndir nákvæmlega á hreinu en ég reyni t.d. að lýsa frjálsu drykkjunum sem best ég man.

Laugardagur 14. febrúar

Klukkan er átta að morgni. Sex keppendur frá Kaffitári – Ég, Ingibjörg, Harpa, Katrín Alfa og Bóel –  og eitt stykki þjálfari og afmælisbarn að nafni Kristín Ingimars, snæða saman morgunverð á kaffihúsi Kaffitárs í Kringlunni (undir rúllustigunum rétt hjá Hagkaup….svo notalegt!), fara með gamanmál og hughreysta hvert annað fyrir þær annasömu og streituvaldandi fimmtán mínútur sem bíða hvert og eitt okkar. Hápunkturinn var svo svaka girnileg afmælisterta eftir ristaða brauðið. Kristín Ingimars kom í viðeigandi prinsessudressi og mundaði veldissprota sem á stóð „Ég er KRISTÍN!“.

Dagurinn sligast hægt en ákveðið áfram. Það virðist alltaf vera dágóður tími til að hafa sig til en skyndilega er hann farinn. Hér voru saman komnir 18 keppendur: Átta frá Te&Kaffi, sex áðurnefndir kaffibarþjónar frá Kaffitár, tveir frá Á Næstu Grösum og loks tveir frá Kaffi Karólínu á Akureyri. Bóel var fyrst til að keppa og Anna Sóley þriðja og allt í einu voru bara fimm keppendur sem voru á undan mér og, eins og skipulagið keppnarinnar var, þurfti ég að koma keppnisdótinu mínu fyrir á svæðinu á meðan keppandinn á undan mér var að….keppa (teljið nástöðurnar í þessari málsgrein). Það var gaman að fylgjast með öllum hinum. Þorri keppenda var að hljóta sína eldskírn akkúrat þennan dag – ég þarámeðal.

Og nú kemst ég varla hjá því að fjalla um sjálfan mig:

Tumi #8 skrifaði ég með svörtu geisladiskatússi á gulan Post-it miða og lagði ofan á hulstrið utan um Heavy Wheather með Wheather Report – tónlistin undir prógrammið mitt. Fusiondjass er soldið lýsandi fyrir hver ég er. Færir hljóðfæraleikarar, gefnir fyrir flóknar pælingar og útfærslur og skrýtin hljóð, koma saman, spila og stíla inn á lítinn markhóp. Tónlistarnördar að reyna að ná sambandi við aðra slíka. Eða bara nörda. Eins og mig.

Keppandi #7  kláraði á yfir sautján mínútum. Ein sekúnda yfir fimmtán mínútum jafngildir einu refsistigi og þau eru talin þar til sextánda mínútan er liðin, þ.e. ein mínúta framyfir. Eftir það er keppandi dæmdur úr leik. Tvö ár í röð keppti ég í undankeppni Kaffitár (úrsláttarkeppni fyrir Íslandmeistaramótið) og endaði með einkunnina „disqualified“. Ég veit nokkurn veginn hvernig keppanda #7 leið þennan daginn. Og næstur á svið….Tuuuuuuuuuuumi Ferreeeeeeeeeeeeer!

Eftir smá tjatt við kynnin létu dómararnir sjá sig, settust við borðið sem ég var búinn að  leggja dúka á með vatnsglösum, servíettu og skeiðum fyrir drykki (það er gefið stig fyrir hvort þetta sé viðstatt eða ekki). Dómarar verða alltaf að halda uppi pókerfési á meðan keppandinn er að, þar eð þeir verða að gæta hlutleysi í hvívetna. Þau tóku samt svo sannarlega eftir því að ég lagði á borð fyrir þau eins og þau væru öll örvhent!

Ekki eins og það sé bannað.

Fimmtán mínúturnar liðu nokkuð hratt og án meiriháttar áfalla. Ég náði að segja mest allt sem mig langaði að segja um kaffiblönduna mína. Mér tókst að vekja forvitni dómaranna á því af hverju ég kaus að nota dijon sinnep í frjálsa drykkinn minn. Það sem mér fannst þó öllu mikilvægast var sú staðreynd að ég kláraði með aðeins eitt refsistig á bakinu. 15:01! Strax og ég hafði lokið mér af var röðin komin að Ingibjörgu systur . Þar sem ég var þá á barmi taugaáfalls á sama tíma og ég átti að vera að drífa mig burt af keppnissvæðinu með allt draslið mitt (ok, þetta var ekki svona truntulegt, reyndar eiga allir sem unnu bak við tjöldin hrós skilið fyrir ljúfmennsku), náði ég ekkert að fylgjast með henni keppa. Hún endaði á að klára á 14:59. Talandi um samrýnd systkini.

Keppnin líður áfram með ákveðinni hrynjandi. Dauð augnablik á laugardeginum voru fá  og má því m.a. þakka að dómarateymin voru tvö. Dómarateymi er skipað fjórum bragðdómurum, tveimur tæknidómurum og einum yfirdómara. Á meðan annað teymið dró sig til hlés til að reikna saman stig þess sem var að klára gátu hinir dómararnir dæmt næsta keppanda. Þannig gat keppandi byrjað strax og sá á undan hafði lokið sér af.

Á milli þess sem ég ráfaði um fyrstu hæð Kringlunnar, hugaði að óhreina leirtauinu mínu, horfði á keppendur keppa og talaði við hina og þessa, kom ég við í tíuellefu og fékk mér banana. Klukkan var farin að ganga tvö og því um fimm klukkutímar síðan ég át síðast: Tvær ristaðar brauðsneiðar með smjöri, osti og sultu (ég leifði hálfri) og sneið af súkkulaðitertu. Dagar eins og þessir eru dagar þar sem maður þarf að setja á dagatalið í símann sinn: Borða.

Endurtaka á þriggja tíma fresti.

Harpa keppti stuttu eftir mér og Ingibjörgu og stóð sig með miklum ágætum, enda var þetta þriðja árið sem hún tók þátt. Kata, sem var líka að keppa í þriðja sinn, var síðust í röðinni, #18. Strax og hún myndi klára ætluðum við afsíðis að skála. Þegar út var komið var, eins og við var að búast, nokkur tilfinningadeyfð yfir okkur. Við töluðum um allt og ekkert. Allt frekar ómerkilegt. Við vorum bara illa steikt í hausnum ennþá. Það eina sem fór í gegnum huga minn var allt sem ég gleymdi að nefna í kynningunni minni; hver arða af upplýsingum sem ég hafði um hlynsírópið sem ég notaði, það að ég minntist ekki á öndunartíma kaffisins, síbyljandi rödd innan í mér sem sagði að ég skammtaði aldrei jafnt í greiparnar og að kannski hefði ég átt að hafa kaffið aðeins grófara. Ekkert af þessu gæti verið greinilegt fyrir áhorfanda, nema eftir sífellda endingu og helst með pásutakka og slow-motion. En ég hugsaði ekki út í það. Ekki þá.

Dómararnir fengu dágóða stund afsíðis ásamt stigaverði til að telja saman stig dagsins og úrskurða hvaða sex keppendur kæmust í úrslit. Nöfnin voru lesin í þessari röð: Harpa, Ingibjörg, Kata, Pálmar, ég og Ragnhildur. Þar með var Landslið Kaffibarþjóna 2009 skipað!  Fjórir frá Kaffitár, tveir frá Te&Kaffi.

Sunnudagur 15. febrúar

Eins og dagurinn á undan var hann tekinn snemma. Keppendur í mjólkurlist mættu áður en sólin steig upp til að undirbúa sig og venjast kaffivélinni Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað það er mikill munur á kaffivélum. Án gríns, það getur verið eins og að skipta úr nýjum Porsche yfir í Lödu Sport. Gefið að maður hafi ekið annað hvort allt sitt líf tekur það alltaf dálítinn tíma að finna sig í hinum bílnum.

Íslandsmeistarakeppnin í mjólkurlist gekk hratt fyrir sig, enda tími á hvern keppanda aðeins átta mínútur og dómurum gert að gefa einkunn áður en næsti keppandi byrjar. Bjarmi frá Kaffitár hampaði Íslandsmeistaratitlinum og varð þar með þriðji Íslandsmeistarinn frá Kaffitár 2009.

Og þá aftur að úrslitum  Íslandsmeistaramóts kaffibarþjóna! Röð keppenda var dregin með hlutkesti. Ingibjörg fyrst, svo ég, síðan Harpa, Kata fjórða, Ragnhildur fimmta og Pálmar seinastur. Streitan fór að hylma yfir okkur aftur. Skeiðar pússaðar; glös, karöflur og bollar fægðir. Ýmis hráefni mæld með nákvæmni í ílát, klaki sóttur, rullan æfð, jógaöndun stunduð. Um leið og Ingibjörg byrjaði sitt rennsli hafði ég fimmtán mínútur til þess að koma öllu mínu dóti fyrir, svo ég gat ekkert fylgst með henni, veit samt að hún stóð sig með prýði.

Eftir að hún kláraði fóru dómararnir afsíðis og skildu mig eftir veltandi upp úr eigin stressi.

Rennslið mitt gekk nokkurn veginn á sama hátt og daginn áður, því miður með þeirri undantekningu að stressinu þyrmdi einum of mikið yfir mig. Þegar ég var búinn að reiða fram cappuccinóana og hálfnaður með frjálsa drykkinn minn áttaði ég mig á þeirri hryllilegu staðreynd að lokið á hristaranum var hvergi. Ég kíkti ofan í hristarann sjálfan – nýbúinn að hella rjóma í hann. Þar stóð hann hálfur upp úr og ein mínúta eftir! Eftir fimmtán sekúndna fát ákvað ég að taka hreina tusku sem lok og hrista rjómann með lokinu í. Útskýrði fyrir dómaranum að ég væri að hrista rjómann til að þykkja hann. Hljóðið í hristaranum væri áður rætt lok, „svona…eitthvað smá svona…fyrir eyrun…þú-st“ náði ég að rausa til reddingar (sökum taugahræringar man ég ekki neitt eftir þessum fimmaurabrandara, sem þó er til í munnlegri geymd vitna). Ég kláraði á slakasta tímanum, 15:30. Þrjátíu dýrmæt stig tekin af mér.

Dómarar fóru síðan afsíðis. Tíminn virtist standa í stað.

Harpa var næst á svið og mér til huggunar stóð hún sig ótrúlega vel og frá mínum bæjardyrum séð sá ég ekkert fara úrskeiðis hjá henni. Hún kynnti kaffiblönduna sína af fagmennsku og hellti í cappuccinóana t.d. fyrir framan dómarana. Frjálsi drykkurinn hennar er settur saman af bláberjasírópi (hlynsíróp og fersk bláber hitað saman í pott) og rjómaíslíki (egg, rjómi og hluti af vanillustöng). Bláberjasírópið setti hún út í expressó og lét í kælingu og í undir lok rennslisins hellti hún íslíkinu útí. Svaka gott!

Dómarar yfirgáfu svæðið. Þögnin breiddi úr sér með einstaka orðaskiptum milli kynnis og keppanda.

Kata var sú eina af okkur sem notaðist ekki við kaffiblöndu. Kaffið hennar er svokallað single origin þ.e. kaffið kemur frá einum uppruna og í þessu tilfelli frá búgarði í Brasilíu sem heitir Carmo og hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar í um 150 ár. Lengi vel mátti ekki keppa nema með kaffiblöndu og það eru ekki nema tvö ár síðan það mátti opinberlega keppa með single origin á heimsmeistaramótinu. Kata byrjaði á nokkrum upplýsingum um kaffið, búgarðinn og bragðgreiningu og vatt sér síðan í að undirbúa frjálsa drykkinn: Steytti saman hrásykri og apótekaralakkrís, auk þess sem hún bræddi súkkulaði í skál yfir vatnsgufu. Lakkrísinn og sykurinn blandaði hún svo við expressó og lét það svo kæla á meðan hún framreiddi expressó og cappuccinó fyrir dómarana. Eftir það var súkkulaðið bráðið og kaffið orðið nógu kalt. Kaffinu var skellt í glös og súkkulaðið sett útí. Rosa næs.

Dómarar farnir. Við fórum út og skáluðum. Á þessu stigi vorum við himinlifandi yfir að vera búin með allt það erfiðasta og nú var bara að bíða og vona.

Þetta varð til þess að ég missti af Ragnhildi frá Te&Kaffi. Ég hafði samt séð hana daginn fyrir. Hún var ein af örfáum sem notaðist við tvær kaffikvarnir. Í annarri var kaffi frá Indlandi, Karnataka, sem hún útbjó expressó og líklega frjálsa drykkinn líka. Í hinni var Súmatra Mandheling fyrir cappuccinó. Í frjálsa drykknum hennar var heimatilbúin karamella og kanilstöng (notuð til að hræra) og gott ef þetta var ekki hunang líka. Skammtímaminni mitt er á við gullfisks. Drykkurinn leit mjög girnilega út hins vegar. Það man ég.

Pálmar (Te&Kaffi) var seinastur á svið. Slökkvitækið hjá dómaraborðinu gaf ýmislegt til kynna um hvað hann hugðist gera. Hann byrjaði á capuccinó og talaði um kaffið sem hann notaði á meðan hann hellti mjólkinni í bollana. Hann notaði kaffi frá Lagoa í Brasilíu  sem hann greindi frá stuttlega varðandi bragð og ítarlegar upplýsingar um náttúrulega áveitu búgarðsins (það renna um þrjátíu litlir lækir þvert á búgarðinn sem nærir jörðina stöðugt). Svo byrjaði hann á frjálsa drykknum. Hann byrjaði á því að setja lífrænan fair-trade hrásykur í glös. Síðan setti hann þrjár anísstjörnur og dökkt súkkulaði (man ekki flokkunina í augnablikinu) saman í íbrikk (pottur til að laga tyrkneskt kaffi) og lagði ofan í skál með glærum vökva.  Svo kveikti hann í honum svo eldtungurnar sleiktu pottinn að utan og dönsuðu óþægilega taumlausar skuggalega nálægt dómurunum. Að mínu mati. Talaði á meðan um þá skemmtilegu staðreynd að etanól er einmitt unnið úr sykurreyr, eins og hrásykurinn. Sniðugt.

Dómarar fóru afsíðis í seinasta skiptið og nú var komið að dagskrárliðnum „hlé“. Það þýddi í raun uppvask, frágangur á eigin dóti og pakka saman í tösku áður en verðlaunaafhendingin færi svo loksins fram.

Úrslit keppninnar eru kynnt með nokkuð sérstöku sniði, finnst mér. Neðsta sætið er kynnt fyrst og þaðan færst upp á við. Þetta leiðir augljóslega af sér  minni spennu en ef aðeins efstu þrjú væru kynnt fyrst. Þetta er samt gert á þennan hátt vegna þess að öll sex sætin fá eigin verðlaunagrip. Mér datt reyndar í hug – bara til þess að krydda upp á úrslitin (samt svolítið á kostnað geðheilsu keppenda) – að geyma sjötta og fyrsta sætið þangað til alveg seinast. Ímyndið ykkur öll þau ómetanlegu ljósmyndaaugnablik sem í þessu fælist! Vonbrigðin í andliti þess sem lendir í neðsta úrslitasæti en innst inni var byrjaður að fagna sigri. Præsless!

Áður en Sonja kynnti úrslitin fór hún nokkrum fögrum orðum um að þróun kaffibarþjónakeppninnar hafi tekið stökk upp á við og viðmiðin hafa verið hækkuð. Keppnin hafi verið rosa skemmtileg og einkenndist af fagmennsku og ástríðu. Nú var ekki eftir neinu öðru að bíða en sjálfri stundinni einni, úrslitunum:

Sjötta sætið fór til Ingibjargar, en hún hlaut einnig verðlaun fyrir besta frjálsa drykkinn.

Í fimmta sæti var Kata,

Ég í fjórða,

Ragnhildur í þriðja.

Til þess að auka spennuna benti Sonja á að sama staða kom upp í fyrra: Harpa og Pálmar tvö ein eftir. Efst.

Harpa fékk silfrið.

Pálmar er því Íslandmeistari, annað árið í röð.

Má með sanni segja að báðir Kaffirisarnir á Íslandi fagni í ár. Te&Kaffi með gull og brons frá Kaffibarþjónakeppninni og eitt silfur að auki í mjólkurlistinni. Kaffitár má einnig vera stolt af silfurhafanum í Kaffibarþjónakeppninni, auk gulls, silfurs og brons í Fagsmökkun sem og Kaffi í góðum vínanda OG gull og brons í mjólkurlistinni.

Það besta við þetta allt saman er að þó að ég vann ekki fer ég samt til Atlanta á Heimsmeistaramótið. Vinkill áhorfandans er miklum mun minna streituvaldandi en keppandans, það get ég staðfest.

Ps. Ég vildi að ég væri með myndir til þess að skreyta þessa lööööngu grein. En þær eru allar á facebook og ég er enn ekki nógu klár til að afrita þær þaðan

Nánar um Íslandsmót Kaffibarþjóna
Eins og ég sagði í síðustu færslu ætlaði ég að koma með nánari upplýsingar um allt varðandi þetta blessaða mót þegar allt væri niðurneglt.

Keppnin verður sem sagt í Kringlunni á fyrstu hæð á Blómatorgi, rétt hjá Blómavali, laugardaginn og sunnudaginn 14- 15. febrúar nk. Á fyrri keppnisdegi keppa samtals 19 keppendur, hver þeirra með 15 mínútna rennsli og byrjar fyrsti keppandi á slaginu 10 um morguninn. Sex stigahæstu keppa svo til úrslita á sunnudaginn. Sigurvegari keppir svo fyrir Íslands hönd í heimsmeistarakeppninni, sem haldin verður í Atlanta, Bandaríkjunum, næstkomandi apríl.

Á sunnudeginum verður dagurinn tekinn snemma með Íslandsmeistarakeppni í mjólkurlist (e. latte art), en hún er öðruvísi m.a. að því leyti að keppendur fá að vita einkunnir sínar jafnóðum og keppnistíma lýkur. Þetta er mun sneggri keppni og áhorfendavænni að sumu leyti; stigataflan er öllum sýnileg og áhorfendur hrífast auðveldlega með.Íslandsmeistarakeppni kaffibarþjóna er aðeins stærra batterí heldur en mjólkurlistin, enda stigagjöfin margfalt flóknari og ráðast úrslitin ekki fyrr en dómarar hafa borið saman stig eftir að allir hafa klárað.

Eftir mjólkurlistina tekur úrslitakeppni kaffibarþjóna við og lýkur þessu að sjálfsögðu með verðlaunaafhendingum.

Þetta er tilvalið tækifæri fyrir ykkur til að sjá kaffibarþjóna í allt öðru ljósi en bakvið afgreiðsluborðið.

Hér getið þið séð keppnisrennsli þáverðandi heimsmeistara 2007, James Hoffmann:

<object width="425" height="344"><embed style="width:425; height:344;" wmode="transparent" id="VideoPlayback" type="application/x-shockwave-flash" src="http://video.google.com/googleplayer.swf?docId=3152272751418925800" flashvars="hl=en&autoplay="></embed></object>

Bíddeh…..kaffikeppni?
„Hvasseigirðu? Er hægt að keppa í kaffi?“ er spurning sem ég heyri nánast undantekningalaust þegar ég segi einhverjum í fyrsta skipti hver sé ástæða mín fyrir fjarveru minni frá ýmsum félagslega tengdum atburðum, eins og mótmæli, tónleikar og annað í þeim dúr. Þau eru sleginn enn meiri furðu þegar ég bæti við að ég sé búinn að æfa frá því í september sl. (reyndar ekki allan tímann jafnstíft, æfingarnar eru tíðari þegar nær dregur móti augljóslega).

Fyrir ykkur sem hafið áhuga á að vita meir um keppnina getið kynnt ykkur reglurnar á worldbaristachampionship.com (óþolandi að skrifa þessa slóð í nýjum vafra). Þar eru m.a. myndir og myndbönd af efstu sex keppendum síðasta móts og annað dót.

Í sem stystu máli gengur keppnin út á færni kaffibarþjóns í framreiðslu á þremur tegundum af drykkjum, fjórum af hverri sort; expressó, cappuccinó og frjáls drykkur (drykkur eftir eigin uppskrift, verður að innihalda expressó og má alls ekki innihalda ólögleg vímu eða fíkniefni). Keppnistíminn er fimmtán mínútur. Kaffibarþjónninn

ber drykkina fram fyrir fjóra bragðdómara en þeir dæma kaffið eftir útliti, lykt og jafnvægi í bragði. Tveir tæknidómarar gefa kaffibarþjóninum stig fyrir samræmi í vinnubrögðum, þrifnað og jafnvægi í tíma sem vatnið rennur í gegnum kaffið yfir í bollann. Auk þess er einn yfirdómari sem gefur stig fyrir „overall performance“.

Þetta skýrist allt í þessu myndbandi.

Æfingarnar hafa snúist um allt milli himins og jarðar sem tengist beint og óbeint keppnisrennslinu. Allt frá borðbúnaði yfir í tónlist í bakgrunni; vigtun á kaffinu sem fer í síuna (verður alltaf að vera jafn mikið, ef það skeikar grammi getur það haft mikil áhrif á bragð); breinstorm um hvað virkar og hvað virkar ekki útí kaffi; við höfum notið aðstoðar leikara upp á framkomu á sviði; heimalærdómur um hvaða kaffi kemur hvaðan, frá hvaða búgarði, nafn bóndans osfrv.; pælingar varðandi mjólkurblöndur fyrir cappuccinó og almennt grúsk í matreiðslubókum.

Þetta er ekki beint einfalt, sjáiði til.

Mótið verður haldið helgina 14-15. febrúar, þ.e. eftir þrjár vikur. Staðsetning verður auglýst síðar. Á sunnudeginum verður líka keppni í svokallaðri mjólkurlist, þar sem fólk keppir um að gera flottasta skraut í kaffibollann, eins og myndin hér að ofan gefur dæmi um.

Öllum er frjálst að mæta og kíkja á þetta

Stafrænir leppalúðar
Þetta vakti athygli mína nógu lengi til að spá aðeins í það yfir í hvað netsamfélagið er að þróast. Minnir mig á það þegar ég var í níunda bekk og gúglaði “miserable failure” og fyrsta niðurstaðan var æviágrip um George W. Bush. Þetta var gert með svokölluðu “Google bombing” (annað dæmi um slíkt prakkarastrik fæst ef þið gúglið “French military victories”). Svona nokkuð sýnir augljóslega mátt fjöldans á netinu.

Mér finnst að mótmælendur á Íslandi ættu að notfæra sér tól internetsins miklu róttækar til að ná sínu fram, hvort sem það er að þvinga núverandi ríkisstjórn til að víkja eða hina og þessa lykilmenn í efnahagslífinu. Þeir eru töluvert veikari ef tölvukerfið hikstar. Taka t.d. Anonymous til fyrirmyndar, þeim hefur tekist nokkuð vel í baráttunni gegn Vísindakirkjunni.

Tölvunördar Íslands ættu að luma á einhverju upp ermina…talandi um að það að bera klút til að hylja andlitið sé herkænska mótmælenda, þá eru aðgerðir á internetinu eins og að vera með huliðsskikkju.

Norskur læknir í Gaza segir frá
<object width="425" height="344"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/bNyer87B2cg&hl=en&fs=1"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/bNyer87B2cg&hl=en&fs=1" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="425" height="344"></embed></object>

Mads Gilbert segir allt sem segja þarf í þessu viðtali. Þessi dráp eru vægast sagt fáránleg að öllu leyti. Ekkert annað en slátrun.