Gefið mér penna eða pensil
svo ég megi pára
Ljá mér strengi að slá á
svo ég megi syngja með
Réttið mér hamar og meitil
svo ég megi höggva og móta
Því annars spring ég úr tjáningu Read more »
Entries Tagged as 'Ljóð'
Angist flíspeysuhúsmóður í Grafarholti með bilaða nettengingu
August 15th, 2008 · No Comments
Tags: Ljóð
Horft niður í klósettskálina
June 9th, 2008 · No Comments
Ég og bunan
erum nú
loksins
eitt
Því heilli einingu sem við myndum,
því skýrari sem hún birtist mér,
því meir sem ég einblíni á hana
eins og ekkert annað í veröldinni skipti máli,
Þeim mun meira vaggar sjálfið
drekkfullt af eitri
milli rænu og móðu
eins og olíuskip í brotsjó
á barmi kúvendingar
Guli straumurinn
haldreipi mitt og bjargvættur frá storminum mikla Read more »
Tags: Ljóð
Persónulegur pirringur látinn í ljós með hjálp örsögu
November 28th, 2007 · No Comments
Pési vaknaði morgun einn við að síminn hans hætti ekki að tísta. Innbyggða vekjaraklukkan var búin að láta hann vita af því í hartnær tuttugu mínútur að klukkan var orðin sjö. Pési er, eins og flestir Íslendingar, óviðræðuhæfur á þessum tíma dags. Eftir að hafa klætt sig og tekið til nesti og skólagögn staulast hann [...] Read more »
Hending undir lok ljúfsárrar helgar
November 25th, 2007 · No Comments
Ort milli spýjukasta á Hverfisbarnum föstudagskvöld um tíuleytið (afar ófullkomin dróttkvæð vísa):
Sumbl umlar bumba,Berserkr út vill iðra.Mjöðr flæðir fjaðrléttr,Niðr bringu og vangaSlefr úr skeggi lekr.
Útskýringar:Sumblbumba: bjórvömbberserkr iðra: magakveisa Read more »
Tags: Ljóð
Örlítill prósi
November 21st, 2007 · No Comments
Læða lagðist yfir dalinn og döggvaði blómið og grasið. Syfjan herjaði á litlu börnin og þögnin var allsráðandi. Sólin seig og hvarf bakvið fjallgarðinn og roðinn litkaði þokuslæðuna. Steggjapari brá fyrir, svamlandi í fjörunni, sem tíminn skreytti eitt sinn með skeljum og fögrum steinum. Skrækir í kríu fléttuðust saman við seiðandi óm sjávarins. Við klettahamrana [...] Read more »



